Nýr samskiptastjóri Biskupsstofu

18. júlí 2019

Nýr samskiptastjóri Biskupsstofu

Pétur G. Markan, nýr samskiptastjóri BiskupsstofuPétur Georg Markan hefur verið ráðinn samskiptastjóri Biskupsstofu.

Pétur hefur undanfarin ár starfað sem sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, ásamt því að leiða Fjórðungssamband Vestfirðinga og Vestfjarðastofu.

Áður starfaði Pétur m.a. sem verkefnastjóri á Markaðs- og samskiptasviði Háskóla Íslands. Auk þess hefur Pétur starfað sem framkvæmdastjóri Stúdentaráðs Háskóla Íslands og framkvæmdastjóri Héraðssambands Vestfirðinga.

Pétur lauk guðfræðiprófi frá Háskóla Íslands.

Pétur hefur tekið þátt í stjórnmálastarfi og sat m.a. á alþingi sem varamaður fyrir Reykjavíkurkjördæmi norður, þingveturinn 2012-2013. Pétur er fyrrverandi formaður Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík.

Þá hefur Pétur setið í fjölda stjórna, nefnda og ráða í ýmsum félagasamtökum og innan stjórnsýslunnar.

Pétur á knattspyrnuferil að baki og lék m.a. með Fjölni, Val og Víking í úrvalsdeild.

Nýi samskiptastjórinn er 38 ára gamall. Unnusta hans er Margrét Lilja Vilmundardóttir, guðfræðingur og íslenskufræðingur. Þau eiga saman þrjú börn, Hörð Markús, Sigrúnu Ísabellu og Úu Maríu.

Pétur mun hefja störf á Biskupsstofu í byrjun ágúst.






  • Frétt

  • Samfélag

  • Samstarf

  • Skipulag

  • Samfélag

Forsetahjónin og vígslubiskupshjónin við Hóladómkirkju

Afar vel sótt Hólahátíð

18. ágú. 2025
...forseti Íslands flutti Hólaræðuna
holarihjaltadal.jpg - mynd

Hólahátíð 2025: Forseti Íslands flytur Hólaræðu

12. ágú. 2025
Hólahátíð fer fram dagana 16. - 17. ágúst n.k. Halla Tómasdóttir forseti Íslands flytur Hólaræðuna að þessu sinni.
garpsdalskirkja2.jpg - mynd

Kirkjuklukkum á Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi hringt samtímis til stuðnings íbúum Gasa

05. ágú. 2025
Fimmtudaginn 7. ágúst kl. 13:00 verða kirkjuklukkum dómkirknanna þriggja á Íslandi hringt og hvetja biskupar Íslands til þess að öðrum kirkjuklukkum verði hringt samtímis. Systurkirkjur Þjóðkirkjunnar í Noregi, Svíþjóð...